NEÓ er systurstaður Flatey Pizza og gerir pítsur innblásnar af upprunalegu pítsuhefðum New York borgar, sem eru meira en 100 ára gamlar.


Við gerum deigið okkar sjálf og látum það kaldhefast í nokkra daga. Sósan er gerð úr San Marzano plómutómötum og salti og engu öðru. Osturinn er blanda af ferskum og óferskum mozzarella - hin fullkomna blanda af ferskum og „sveittum“ osti.


Niðurstaðan: ómótstæðilega stökkar og djúsí pítsur með kraftmiklum áleggjum (bannað að spara hvítlauksolíuna).


Share by: